|
Klúbbhúsið lokað um helgina |
|
Kylfingar athugið að klúbbhúsið/Gistiheimilið Geysir er lokað kylfingum um helgina 8-10 október vegna útleigu. |
|
|
Lokað mót föstudaginn 20 ágúst |
|
Lokað fyrirtækjamót verður á Haukadalsvelli föstudaginn 20. ágúst. Völlurinn er því lokaður frá kl. 12:00 þennan dag. |
|
|
Meistaramót GEY 2010 Úrslit |
|
Meistaramót GEY var haldið fimmtudaginn 22. júlí. Efsta flokkinn vann Birgir Már Vigfússon í þriðja sinn. Hann spilaði 18 holurnar á 77 höggum. Annan flokkinn vann Hermann Marinó Maggýjar son á 112 höggum og þriðja flokkinn vann Hallur Þorsteinsson á 132 höggum. Í kvennaflokki var einn keppandi Rakel Egilsdóttir og spilaði hún til sigurs á 146 höggum. Frekari upplýsingar á golf.is |
|
|
Haukadalsvöllur við Geysi kominn í Golf Iceland |
|
Haukadalsvöllur hefur nú verið samþykktur inn í samtökin Golf Iceland. Samtökin voru stofnuð árið 2008 af nokkrum ferðaþjónustufyrirtækjum, golfklúbbum sem reka 18 holu golfvelli, Ferðamálstofu og Golfsambandi Íslands. Markmið samtakana er m.a. að kynna Ísland sem golfáfangastað fyrir erlendum golfurum. Liður í því, var að fá hingað aðila frá IAGTO, alþjóðlegum samtökum golf-og ferðaþjónustuaðila. Þeir komu hingað í fyrrasumar og tóku út fjölda golfvalla, m.a. Haukadalsvöll. Þeim hefur líkað það sem þeir upplifðu hér, því að í framhaldinu var Haukadalsvelli boðin aðild að IAGTO og þar með staðfest að völlurinn og þjónustan samræmdist kröfum þeirra. Nú er Haukadalsvöllur einnig kominn í Golf Iceland og er þar eini 9 holu golfvöllurinn, að því er best er vitað. Er þess vænst að markaðssetning vallarins erlendis verði með markvissari hætti nú og erlendir golfarar fari að sækja völlinn heim í ríkara mæli en hingað til. Þar bætast þeir í hóp vaxandi fjölda íslendinga sem spila golf á Geysi við bestu aðstæður og í einstöku umhverfi. |
|
Golfmótið, 66°Norður punktakepppnin, var haldin í dag. Úrslit eru eftirfarandi Í karlaflokki 1. sæti Árni Þór Finnsson 2. sæti Eiríkur Ómar Sveinsson 3. sæti Börkur Geir Þorgeirsson Í kvennaflokki 1. sæti Sólveig Björk Jakobsdóttir 2. sæti Ragnheiður Jónsdóttir 3. sæti Guðrún Erna Guðmundsdóttir Nándarverðlaun 5/14 braut Gunnar Már Ásgeirsson, 2,06m 7/16 braut Árni Þór Finnsson, 5,51m Vinningshafar geta vitjað verðlauna í klúbbhúsi. |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>
|
| Niðurstöður 13 - 18 af 51 |