Header Pic Header Pic
Header Pic
Header Pic
Header Pic  PfeilUpphafssíða arrow Fréttir arrow Almennt arrow Framkvæmdir við völlinn
Header Pic
Header Pic

Framkvæmdir við völlinn PDF Prenta Rafpóstur

Í vetur verða einhverjar framvæmdir við völlinn.  Höfum nú þegar farið um völlinn og borað með 50cm breiðum bor í flestar lægðir á brautum vallarins.  Þarna boruðum við niður úr moldarlagi, niður í grús, allt niður í 6m dýpt.  Setjum síðan frárennslisrör og drenmöl í holurnar.  Vonum að vatns-og klakasöfnun á vellinum í vetur og í framtíðinni verði minni fyrir vikið. 

Stefnum á breitingar á 6 braut þegar við förum að sjá til jarðar fyrir snjó.  Þar stendur til að jafna út gamlar hústóftir við brautarendann, þannig að teighöggin ættu að verða léttari.  Styttra inn á braut og ekki eins blint.  Ætlum einnig að skoða það að rýmka aðeins um einhverjar flatir.  Breikka grassvæði þar í kring, á kostnað náttúrugróðurs.  Vonum að golfurum líki þessar breitingar.  Annað skoðast síðan með tilliti til veðráttu og tíma.

 
< Fyrri   Næsti >
Header Pic
left unten right unten
Haukadalsvöllur / Gistiheimilið Geysi - Haukadal III - 801 Selfoss - Símar: 486 8733, 893 8733 og 898 9141 -   Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það