|
Haukadalsvöllur opnar formlega þetta árið laugardaginn 28. maí. Frítt kaffi og vöfflur í boði, eins og venjulega á opnunardegi. Völlurinn hefur verið seinn til þetta vorið, eins og víðar. Klakinn farið seint úr jörðu og bleytan því setið lengur í vellinum og hann ekki verið fær stærri vélum, fyrr en í síðustu viku. Flatir hafa þvi verið slegnar með handvélum undanfarnar vikur. Nú er hins vegar allt klárt og vonandi að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og skaffi okkur gott golfveður í bland við vætu fyrir grasið.
|